Um Símon

SÍMON eru samtök Íslendinga í München og nágreni.

Tilgangur félagsins er fyrst og fremst að styðja við félagslíf Íslendinga sem búsettir eru í München og nágrannasveitarfélögum. Í því skyni stöndum við fyrir ýmiskonar uppákomum – fyrir utan árlegar samkomur á helstu hátíðisdögum hittast félagsmenn alltaf einu sinni á mánuði á einhverju af fjölmörgum öldurhúsum borgarinnar. Staðsetning og tími er auglýst sérstaklega á þessari síðu. Einnig erum við með hóp á fésbókinni þar sem samkomur eru auglýstar og ýmist annað sem er að gerast í München.
Við leitumst við að koma íslenskri menningu á framfæri við þá heimamenn sem áhuga hafa á, sem og að kynna bæverskar hefðir og menningu fyrir félagsmönnum.
Stór hluti félagsmanna stundar nám við hina ýmsu háskóla í borginni. Við fögnum að sjálfsögðu hverjum nýjum félagsmanni og erum áhugasömum innan handar hvað varðar nám eða búsetu í München.

alltaf er hægt að hafa samband við okkur á netpóstfangið simon@askja.org eða skrifa á vegginn á fésbókinni í hópnum “Íslendingar í München og nágrenni”

- Stjórnin

Comments are closed.