Fyrir Íslendinga er Skólaárið hérna í Bæjaralandi frekar skrítið. Í háskólanum byrjar ný önn í Október og í Apríl.
Í grunnskóla og menntaskóla er sumarfríið frá enda Júlí/ byrjun Ágúst fram í miðjan September (ca. 11.-14.11), Jólafríið byrjar ekki fyrr en þann 24.12..
Þrátt fyrir stutt sumarfrís, bætir vetrarfríið og vorfríið mikið upp. Vetrarfrí (Winterferien) er í febrúar og er það mikið nýtt fyrir skíðaferðir þar sem Alparnir eru ekki langt í burtu, síðan er vorfríið (Pfingstferien) tvær vikur og fara margir Þjóðverjar á þeim tíma í sumarfrí. Páskafríið er venjulegt.
Hægt er að sjá hvernig frídagar leggjast næstu árin í grunnskóla og menntaskóla á síðunni:
http://www.schulferien.org/Bayern/bayern.html