June 21st, 2007
Kæru félagar
Að venju munum við halda upp á þjóðhátíðardaginn með grillveislu. Hún verður haldin næstkomandi laugardag, 23. júní, á bökkum Isar kl. 14:00, ef veður leyfir. Félagið mætir með grill og drykkjarföng, en félagsmenn sjá sjálfum sér fyrir grillmat.
Við ætlum að hittast við suðurhluta Flauchersteg, rétt hjá Isarauen og Tierpark á svipuðum slóðum og í fyrra (sjá kort að neðan). Gott er að taka með sér lautarferðarteppi eða útilegustóla til að hafa það notalegt.
Vonumst til að sjá ykkur sem flest
Kveðja
Stjórnin
- - -
Der isländishe Nationalfeiertag
Liebe Freunde,
Wie in den letzten Jahren werden wir die Selbständigkeit Islands mit einer Grillparty an der Isar feiern. Wir treffen uns nächsten Samstag, 23. Juni, um 14 Uhr am Südlichen Flauchersteg, nah an Isarauen und dem Tierpark - siehe auch Karte unten.
Der Verein sorgt für die Grillausrüstung und Getränke, Gäste Müssen Ihr eigenes Grillfleisch mitnehmen.
Liebe Grüße
der Vorstand
—-

Posted in Uncategorized | No Comments »
June 19th, 2007
Skráning í borgina
Dvalarleyfi
Sjúkratryggingar
MVV
GSM
Stofna bankareikning
Húsnæði
Fastalína
Þýskunám/Þýskupróf
Posted in Uncategorized | No Comments »
June 19th, 2007
Á München Ticket má kaupa miða á tónleika og aðra listviðburði í borginni.
München Ticket
Toytown München er heimasíða enskumælandi íbúa borgarinnar. Þar má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar um lífið í borginni.
Toytown München
In München er listi yfir ýmsa viðburði næstu mánuði.
In München
Opinber heimasíða borgarinnar.
München
Á Gastroguide má finna upplýsingar um knæpur og veitingahús í München.
Gastroguide
Munichx býður sömuleiðis upp á lista yfir knæpur og veitingahús.
MunichX
Á heimasíðu Byggingaverkfræðideildar tækniháskólans má finna yfirlit yfir helstu knæpur í nágrenni aðalbyggingar háskólans.
Knæpur í Schwabing
Atomic Cafe er knæpa og tónleikastaður í miðborg Münchenar. Þar spila oft áhugaverðar hljómsveitir.
Atomic Cafe
Muffathalle er stór tónleikahöll.
Muffathalle
Posted in Uncategorized | No Comments »
June 19th, 2007
Listi þessi yfir skóla í München er engan veginn tæmandi. Fyrir tæmandi yfirlit er best að snúa sér að Wikipedia.
Tækniháskólinn í München (Technische Universität München, TUM) kennir allar gerðir verkfræði auk stærðfræði, viðskipta- og hagfræði, tölvunarfræði, efnafræði, eðlisfræði o.s.frv. Þar er meðal annars boðið upp á BSc og MSc nám.
Skólinn er skv. FOCUS-Ranking virtasti tækniháskóli Þýskalands.
Heimasíða: www.tum.de
Ludwig-Maximilian háskólinn (LMU) er í München og kennir allar aðrar greinar en tæknigreinar.
LMU er skv. FOCUS-Ranking virtasti almenni háskóli Þýskalands.
Heimasíða: www.lmu.de
Fachhochschule München er háskóli sem kennir hagnýtar greinar (enska: applied science).
Heimasíða: www.fh-muenchen.de
Munich Business School er háskóli sem kennir viðskiptatengdar greinar, og það að mestu leyti á enskri tungu.
Heimasíða: www.munich-business-school.de/
Upplýsingar um allt mögulegt varðandi útlenda námsmenn í Þýskalandi og styrki til náms má finna hér: DAAD.
Málaskólar í München eru margir, þeir helstu eru:
Goethe-Institut München, Sonnenstraße 25. www.goethe.de
inlingua München, Sendlinger-Tor-Platz 6. www.inlingua-muenchen.de
TANDEM München, Kurfürstenplatz 5. www.tandem-muenchen.de
ASL Sprachenschule, Leopoldstraße 62. www.aslsprachen.de
Fyrirspurnir má gjarnan senda til: david.tryggvason(hjá)gmail.com
Posted in Uncategorized | No Comments »
June 19th, 2007
München er höfuðborg Bæjaralands og er þriðja stærsta borg Þýskalands. Í borginni búa í kringum 1.3 milljónir. Byggðin er þétt og innan innsta kjarna borgarinnar er auðvelt að komast á milli staða, fótgangandi eða hjólandi, en almenningssamgöngur eru einnig afbragðsgóðar.
Sögulegt ágrip (wikipedia)
stríðið
Ólympíuleikar
Efnahagsástand í dag
helstu (bjór)hátíðir
Posted in Uncategorized | No Comments »
June 19th, 2007
Ef félagar í SÍMON-i vilja setja sjálfir efni inn á vefinn þá er það meira en velkomið. Sendið tölvupóst á brynjar@askja.org og þið fáið sent notendanafn og lykilorð um hæl.
Vefdeildin.
Posted in Vefhorn | No Comments »
May 4th, 2007
Stammtisch maímánaðar verður að þessu sinni á Frühlingsfest, sem eins og flestum ætti að vera kunnugt um fer fram um þessar mundir á Theresienwiese. Þar verðum við næstkomandi föstudag, 4. maí, klukkan 19:00.
Brynjar Óskarsson hefur tekið að sér að halda frá borði fyrir félagsmenn, hann verður í Augustiner-tjaldinu og verður við símann (0176 21989346) fyrir þá sem ekki finna hann.
Flestum ætti að vera kunnugt um hvernig best er að komast á Engin, en við þau er einmitt kennd U-Bahn stöðin Theresienwiese (U5).
Kveðja,
Stjórnin
—
Liebe Freunde,
unser Maistammtisch findet an diesem Freitag, den 4. Mai, an der Frühlingsfest auf der Theresienwise um 19 Uhr statt.
Brynjar Óskarsson wird für uns im Augustiner-Zelt ein Tisch freihalten, er wird auch telefonisch (0176 21989346) erreichbar sein, sollte jemanden Probleme haben, uns zu finden.
Zu Theresienwiese kommt man z.B. mit der MVV, U5, Haltestelle Theresienwiese.
Wir freuen uns, euch alle zu sehen
Der Vorstand
Posted in Stammtisch | No Comments »
April 20th, 2007
Íslenska hljómsveitin GusGus verður með tónleika í Muffathalle, Zellstraße 4 (S-Bahn Isartor) mánudaginn 7. maí næstkomandi. Tónleikarnir hefjast klukkan níu. Félagsmenn SÍMONar eru hvattir til að mæta.
—
Das isländische Band GusGus wird am 7. Mai um 21:00 Uhr in der Muffathalle, Zellstraße 4 (S-Bahn Isartor) auftreten. Wir würden uns freuen euch da zu sehen.
Nánari upplýsingar/genauere Infos: hér/hier
Miðar/Karten: hér/hier
Posted in Uncategorized | No Comments »
April 9th, 2007
Kæri Félagi
Stammtisch aprílmánaðar fer fram næstkomandi föstudag, þann 13. apríl, klukkan 20:00. Í þetta skiptið verðum við á Türkenhof, Türkenstrasse 80. Að vanda sér MVV um sína, því í grenndinni er U-Bahn stöðin Universität (U3, U6), strætó 154 stoppar á gatnamótum Türkenstrasse og Schellingstrasse, og Tram 27 á gatnamótum Barerstrasse og Schellingstrasse. Allar þessar stoppistöðvar eru í innan við 10 mínútna göngufjarlægð frá Türkenhof, að því gefnu að menn séu sæmilega göngufærir.
Vonumst til að sjá sem flesta
Stjórnin
————————-
Liebe Freunde,
unser Aprilstammtisch findet am Freitag den 13. April um 20 Uhr statt, dieses mal im Türkenhof, Türkenstrasse 80.
In der Nähe befinden sich mehrere Haltestellen unseres beliebten MVV, und zwar diese:
Universität (U3/U6), Türkenstrasse (Ecke Schellingstrasse, Bus 154), Schellingstrasse (Ecke Barerstrasse, Tram 27).
Wir freuen uns, euch alle zu sehen
Der Vorstand
Posted in Uncategorized | No Comments »
April 2nd, 2007
Núna er hægt með einföldum hætti að skrá sig á póstlista SÍMON-ar.
Hægra megin á þessari síðu er tengill sem heitir Póstlisti. Þar er hægt að skrá inn nafn og netfang. Þegar búið er að skrá sig er sendur póstur á uppgefið netfang. Í þeim pósti er tengill sem þarf að smella á til að staðfesta skráninguna.
Vefdeild SÍMON-ar.
Posted in Vefhorn | 1 Comment »