Opnunartími verslana

Verslanir í München eru flestar opnar til 20:00 virka daga og á laugardögum en eru allar lokaðar á sunnudögum. Ef menn vakna við vondan draum á sunnudegi með tóman ísskáp er eina lausnin að skreppa út á næstu bensínstöð eða lestarstöð, þar sem verslanir eru undanþegnar opnunarbanninu á sunnudögum, eða þá auðvitað að líta inn á eina af fjölmörgum knæpum eða veitingastöðum borgarinnar.

Á heimasíðu aðaljárnbrautastöðvarinnar má finna yfirlit yfir þær verslanir sem þar er að finna.

Comments are closed.