Íslendingar þurfa ekki lengur sérstakt dvalarleyfi til að búa, læra og starfa í Þýskalandi. Íslenskt vegabréf er m.ö.o. ígildi dvalarleyfis. Við komuna til München er aftur á móti nauðsynlegt að skrá búsetu sina í borginni, sama skylda er reyndar lögð á Þjóðverja. Skráning búsetu fer fram í Kreisverwaltungsreferat, Rupperstraße 19, 80337 München. Á sama stað má nálgast skjöl til staðfestingar á réttindunum sem fylgja vegabréfinu ef atvinnurekandi eða skóli vill fá að sjá slíkt.
Þangað er einfaldast að koma með U3 / U6 á Poccistraße stöðina. Á brautarpallinum eru skilti sem vísa veginn.
Opnunartíma KVR má finna hér. Mælt er með því að mæta snemma og með góða bók til að stytta biðina.