Archive for June, 2010

JúníStammisch !!!

Tuesday, June 22nd, 2010

Kæru Félagar,

Eins og seinasta blogg og vefpóstur gaf til kynna, verður næsti Stammtisch núna á föstudaginn. Seinasti Vefpóstur um JúníStammtisch innihélt stafarugl og var þar af leiðandi erfiður að lesa. Þess vegna sendi ég núna áminningu, við hittumst á “Zum Flaucher“, núná á föstudaginn 25.06. klukkan 17:30. Eins og planað var, reynum við að ná borði hjá leikvellinum. Hlakka til að sjá ykkur

Stjórnin


Liebe Freunde,

An diesem Freitag wird ein Stammtisch stattfinden wie in der vorherigen E-mail angekündigt wurde. Leider hatte diese etwas bei den Sonderzeichen gesponnen. Es sieht so aus als werden wir gutes Wetter haben. Wir hoffen das viele zum “Flaucher” kommen werden.

Der Vorstand

Seinn Júní Stammtisch

Wednesday, June 16th, 2010

Kæru Félagar,

Eins og veðurspár hafa gefið í ljós virðist veðrið ekki ætla að verða okkur hliðholt á laugardeginum. Þess vegna ætlum við að færa Stammtisch um 1 viku þ.e.a.s. á föstudeginn 25.06. Ætlum við að hittast klukkan 17:30 á sama stað og planað var, „Zum Flaucher“. Vona sem flestir sjái sér fært að mæta og að veðrið fari að sýna betri hlið á sér.

Stjórnin


Liebe Freunde,

Es sieht so aus als würde das Wetter am Samstag nicht mitspielen. Deshalb werden wir den Stammtisch um eine Woche verlegen, das heißt am Freitag den 25.06 um 17:30Uhr werden wir uns im „Zum Flaucher“ treffen. Hoffen wir, dass das Wetter sich bis dann verbessert.

Bis dann
Die Leitung

Júnístammtisch og 17. Júní

Thursday, June 3rd, 2010

Kæru félagar.

Á laugardeginum 19. Júní ætlum við að halda hátíðlega upp á 17. Júní í bjórgarðinum „Zum Flaucher“. Bjórgarðurinn er með leikvöll og er staðsettur á bökkum Isar. Þar ætlum við að hittast klukkan 14:00 og reyna að fá borð sem næst leikvellinum. Til að við finnum hvort annað væri skemmtilegt ef allir kæmu með íslenska fánann. Bjórgarðurinn „Zum Flaucher“ er staðsettur í götunni Isarauen 8, 81379 München. Hægt er að komast að bjórgarðinum á mismunandi vegu. Hægt er að leggja bílunum við „Isarkanal“, taka U3 til Brudermühlstraße, taka strætó númer 54 til „Schäftlarnstraße” og þeir sem eru sportlegir geta komið á hjóli.

Hlakka til að sjá ykkur,
Stjórnin


Liebe Freunde,

Am 19. Juni wird im Biergarten „Zum Flaucher“ ein Stammtisch statt finden. Da wollen wir gemeinsam den Nationalfeiertag nach feiern. Der Biergarten „ Zum Flaucher“ ist nicht zu groß, hat einen Spielplatz und ist direkt an der Isar. Treffpunkt ist um 14:00Uhr. Wir werden versuchen einen Tisch so nahe am Spielplatz zu besetzen, und damit alle uns finden Isländische Fahnen schwenken. Die genaue Position des Biergartens ist in Isarauen 8, 81379 München. Anfahrtmöglichkeiten sind mit der U3 bis zur Brudermühlstraße, Bus Linie 54 „Schäftlarnstraße“, wenn man mit dem Auto kommt sind Parkmöglichkeiten am Isarkanal und für die, die sportlicher sein wollen, gibt es Stellmöglichkeiten fürs Fahrrad am Isarkanal.

Ich freue mich darauf euch zu sehen!
Der Vorstand


Zum Flaucher
Isarauen 8
81379 München

http://www.zumflaucher.de/hauptnavigation/anfahrt/

( P.S. Ef leitað er að bjórgarðinum á Google-maps, er best að leita að staðsetningunni (Isarauen 8 81379 München) en ekki nafn bjórgarðsins. Annars er gefin upp vitlaus staðsetning bjórgarðsins. /
Bitte bei der suche auf Google-Maps mit der Straße suchen nicht mit dem Namen „Zum Flaucher“ sonst käme eine falsche Position. )