Archive for July, 2007

Gulrótarkaka

Monday, July 30th, 2007

Hér á eftir fylgir uppskrift að gulrótarköku sem vakti nokkra lukku á Schelling síðustu helgi. Uppskriftinni er stolið úr skoskri kokkabók.

Innihald:
175 g hveiti
3/4 teskeið lyftiduft
3/4 teskeið matarsódi
3/4 teskeið kanill
3/4 teskeið salt
Rétt tæplega 300 ml sólblómaolía
350 g sykur
3 stór egg
225 g rifnar hráar gulrætur

Krem:
175 g rjómaostur
175 g smjör
225 g flórsykur
1/2 tsk vanilludropar

Aðferð:

Sigtið saman þurrefnin. Setjið olíuna í skál, bætið við sykri og þeytið með rafmagnsþeytara. Bætið við eggjum, einu og einu í senn og þeytið vel eftir hvert. Hrærið þurrefnum varlega saman við og bætið svo loks rifnu gulrótinni út í.

Bakið í 25 cm hringformi við 180°C í 45 mín, lækkið svo hitann í 170°C og bakið í aðrar 20 mín eða þar til ekkert deig loðir við hnífsblað sem stungið er í miðja kökuna. Þegar kakan er bökuð takið hana úr ofninum, leyfið henni að kólna í 5 mín í forminu, takið hana svo varlega úr því og leyfið að kólna alveg.

Nú má taka til við kremið. Þeytið saman smjör og rjómaost og sigtið svo smám saman flórsykurinn saman við. Þeytið vel saman og bætið vanilludropunum út í. Skerið kökuna í tvennt og smyrjið helmingnum af kreminu í miðjuna og hinum helmingnum ofan á.

Það tók Indriða og Brynjar innan við hálftíma að klára mest alla kökuna (reyndar með smá aðstoð) en þetta er það má þá alltaf bara baka meira.

Júlístammtisch

Tuesday, July 3rd, 2007

Kæru félagar

Nú er komið að stammtish júlímánaðar. Að þessu sinni ætlum við að hittast á bjórgarðinum við Löwenbräukeller við Stieglmeierplatz, næstkomandi laugardag þann 7. júlí klukkan 19.

Upplýsingar um bjórgarðinn má finna á heimasíðu Löwenbräukeller, sér í lagi má þar finna leiðbeiningar um hvernig best er að komast þangað

http://www.loewenbraeukeller.com

http://www.loewenbraeukeller.com/anreise.html

Vonumst til að sjá sem flesta
Stjórnin


Liebe Freunde,

unser Julistammtisch findet nächsten Samstag, den 7. Juli, um 19 Uhr statt. Wir treffen uns dieses mal im Löwenbräukeller-Biergarten am Stieglmaierplatz.

Weitere Informationen findet Ihr z.B. auf der Homepage des Löwenbräukellers, u.a. Anreisemöglichkeiten

http://www.loewenbraeukeller.com

http://www.loewenbraeukeller.com/anreise.html

Wir freuen uns, euch alle zu sehen
Der Vorstand

Mynturísottó

Tuesday, July 3rd, 2007

Eftirfarandi er uppskrift að rísottó með myntu, að hætti meistarakokksins Finnboga Óskarssonar:

6 skalottulaukar, fínt saxaðir
2 hvítlauksrif, pressuð
50 g smjör
200 g arboríogrjón
safi úr einni sítrónu
1/2 L grænmetissoð, ég nota tening
börkur af einni sítrónu
handfylli af myntulaufum, gróft skorin
70 g parmesan, rifinn
1-2 msk af matreiðslurjóma
svartur pipar og maldonsalt

Laukur og hvítlaukur látin svitna í smjörinu í ca. 5 mínútur. Þá er grjónunum bætt út í og hrært í ca. 1 mínútu. Því næst er sítrónusafinn settur út í og hrært þar til hann er allur gufaður upp. Ein ausa af soðinu því næst sett út í og hrært þar til það er allt gufað upp. Þá næsta ausa og þannig koll af kolli þar til grjónin eru al dente (15-20 mínútur). Ágætt er að pipra á miðri leið. Þá er sítrónuberkinum, myntunni, ostinum og rjómanum bætt út í og hrært í 1-2 mínútur. Smakkað til með salti og pipar og látið standa í 1-2 mínútur áður en þetta er borið fram með rifnum parmesan og meiri myntu.

Þessi skammtur einn og sér dugar ágætlega fyrir tvo. Ítalskt Pinot Grigio smellpassar með þessu, og einnig er gott að marinera kjúklingabringur í sítrónusafa, myntu og svörtum pipar og borða með rísottóinu.