Fylltar kjúklingabringur á pastabeði

Vegna fjölda áskoranna hefur SÍMON ákveðið að hafa uppskriftahorn á heimasíðunni. Hér verður því hægt að nálgast brot af því besta sem meðlimir SÍMON-ar eru að elda dags daglega.

Fyrsta uppskriftin er Fylltar kjúklingabringur á pastabeði. Ég er ekki alveg viss um hvaðan hún er stolin, en um leið og ég finn heimildirnar mun ég setja þær inn.

Fyrir 4 (þ.e. c.a. 2-3 félaga í SÍMON)
1 msk. ólífuolía
2 hvítlauksgeirar, saxaðir
8 sólþurrkaðir tómatar, saxaðir
150 g parmesanostur, rifinn
400 g Philadelphia rjómaostur
Maldon-salt og nýmalaður pipar
3 lúkur spínat
4 kjúklingabringur
8 sneiðar Ali-beikon
tannstönglar
400 g tagliatelle
4 msk. ólífuolía
2 lúkur steinselja, söxuð

Hitið ofninn í 180°C. Steikið hvítlaukinn í ólífuolíunni, bætið spínatinu við og steikið áfram í 3 mínútur. Kælið. Blandið sólþurrkuðu tómötunum, parmesanostinum og rjómaostinum saman og kryddið með salti og pipar.
Blandið spínatinu saman við. Skerið djúpan skurð í hliðina á hverri kjúklingabringu og fyllið hann með rjómaostsblöndu. Vefjið beikoni utan um og vestið það með tannstönglum. Eldið bringurnar í ofninum í 30 mínútur, eða þangað til bringan er ekki lengur hrá í miðjunni.
Sjóðið pastað í saltvatni samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum. Sigtið vatnið frá pastanu, veltið því upp úr ólífuolíu og steinselju og skiptið því á fjóra diska. Leggið kjúklingabringu ofan á og berið fram.

Gott er að bera fram blandað salat með ólífuolíu og balsamic ediki.

Með þessu fara svo um það bil 2 lítrar af kældum Augustiner bjór á mann.

Njótið.

Comments are closed.