SÍMON
SÍMON eru samtök Íslendinga í München og nágreni.
Tilgangur félagsins er fyrst og fremst að styðja við félagslíf Íslendinga sem búsettir eru í München og nágrannasveitarfélögum. Í því skyni stöndum við fyrir ýmiskonar uppákomum - fyrir utan árlegar samkomur á helstu hátíðisdögum hittast félagsmenn alltaf fyrsta föstudag hvers mánaðar á einhverju af fjölmörgum öldurhúsum borgarinnar. Staðsetning og tími er auglýst sérstaklega á þessari síðu.
Við leitumst við að koma íslenskri menningu á framfæri við þá heimamenn sem áhuga hafa á, sem og að kynna bæverskar hefðir og menningu fyrir félagsmönnum.
Stór hluti félagsmanna stundar nám við hina ýmsu háskóla í borginni. Við fögnum að sjálfsögðu hverjum nýjum félagsmanni og erum áhugasömum innan handar hvað varðar nám eða búsetu í München.
Stjórn félagsins starfsárið 2007-2008 skipa:
Ögmundur Petersson formaður
Brynjar Óskarsson ritari og vefstjóri