Eftirfarandi er uppskrift að rísottó með myntu, að hætti meistarakokksins Finnboga Óskarssonar:
6 skalottulaukar, fínt saxaðir
2 hvítlauksrif, pressuð
50 g smjör
200 g arboríogrjón
safi úr einni sítrónu
1/2 L grænmetissoð, ég nota tening
börkur af einni sítrónu
handfylli af myntulaufum, gróft skorin
70 g parmesan, rifinn
1-2 msk af matreiðslurjóma
svartur pipar og maldonsalt
Laukur og hvítlaukur látin svitna í smjörinu í ca. 5 mínútur. Þá er grjónunum bætt út í og hrært í ca. 1 mínútu. Því næst er sítrónusafinn settur út í og hrært þar til hann er allur gufaður upp. Ein ausa af soðinu því næst sett út í og hrært þar til það er allt gufað upp. Þá næsta ausa og þannig koll af kolli þar til grjónin eru al dente (15-20 mínútur). Ágætt er að pipra á miðri leið. Þá er sítrónuberkinum, myntunni, ostinum og rjómanum bætt út í og hrært í 1-2 mínútur. Smakkað til með salti og pipar og látið standa í 1-2 mínútur áður en þetta er borið fram með rifnum parmesan og meiri myntu.
Þessi skammtur einn og sér dugar ágætlega fyrir tvo. Ítalskt Pinot Grigio smellpassar með þessu, og einnig er gott að marinera kjúklingabringur í sítrónusafa, myntu og svörtum pipar og borða með rísottóinu.