Nám í München

Listi þessi yfir skóla í München er engan veginn tæmandi. Fyrir tæmandi yfirlit er best að snúa sér að Wikipedia.

Tækniháskólinn í München (Technische Universität München, TUM) kennir allar gerðir verkfræði auk stærðfræði, viðskipta- og hagfræði, tölvunarfræði, efnafræði, eðlisfræði o.s.frv. Þar er meðal annars boðið upp á BSc og MSc nám.
Skólinn er skv. FOCUS-Ranking virtasti tækniháskóli Þýskalands.
Heimasíða: www.tum.de

Ludwig-Maximilian háskólinn (LMU) er í München og kennir allar aðrar greinar en tæknigreinar.
LMU er skv. FOCUS-Ranking virtasti almenni háskóli Þýskalands.
Heimasíða: www.lmu.de

Fachhochschule München er háskóli sem kennir hagnýtar greinar (enska: applied science).
Heimasíða: www.fh-muenchen.de

Munich Business School er háskóli sem kennir viðskiptatengdar greinar, og það að mestu leyti á enskri tungu.
Heimasíða: www.munich-business-school.de/

Upplýsingar um allt mögulegt varðandi útlenda námsmenn í Þýskalandi og styrki til náms má finna hér: DAAD.

Málaskólar í München eru margir, þeir helstu eru:

Goethe-Institut München, Sonnenstraße 25. www.goethe.de
inlingua München, Sendlinger-Tor-Platz 6. www.inlingua-muenchen.de
TANDEM München, Kurfürstenplatz 5. www.tandem-muenchen.de
ASL Sprachenschule, Leopoldstraße 62. www.aslsprachen.de

Fyrirspurnir má gjarnan senda til: david.tryggvason(hjá)gmail.com

Comments are closed.